Hulduland
sunnudagur, ágúst 08, 2010
miðvikudagur, ágúst 04, 2010
föstudagur, júní 18, 2010
fimmtudagur, júní 17, 2010
Hátíð í bæ
Við byrjuðum daginn með því að veifa fánanum og syngja Öxar við ána og töluðum um að lýðveldið Ísland ætti afmæli. 66 ára er lýðveldið orðið... höldum við. Fáninn fékk að fara með á leikskólann í morgun og á heimleiðinni verður keypt pítsa.
Eftirrétturinn er svo sérinnfluttur frá Íslandi: rammíslenskt Prins Póló frá Póllandi með mjólk.
Eftirrétturinn er svo sérinnfluttur frá Íslandi: rammíslenskt Prins Póló frá Póllandi með mjólk.
miðvikudagur, júní 16, 2010
Svefnvenjur
Síðan Íris fæddist hef ég átt erfitt með að sofa á næturnar. Fyrstu árin var hún alltaf lasin og það var ekki fyrr en núna eftir jól sem barnið fór að sofa heilar nætur. En þá var líkaminn minn hættur að vonast eftir svefni og fyrst í vor gat ég lagst á koddann á kvöldin og slakað á og næstum alltaf reiknað með því að ekki þurfa að vakna fyrir klukkan hálfsjö.
Núorðið get ég sofið. En ég má ekki við miklu. Ég fer á taugum af tilhugsuninni um vekjaraklukku svo ég vakna sjálf klukkan sjö. Þar að auki er ég næstum alltaf komin upp í rúm klukkan ellefu til að tryggja að ég fái að sofa sem lengst ef ske kynni að hennar hátign skildi dreyma illa og vakna um miðja nótt.
Í gær var ég á fótum til tvö að vinna að verkefninu. Getið hver vaknaði klukkan hálfsex og hélt því fram að kominn væri dagur!

sunnudagur, júní 13, 2010
Ömmudagur í dag
Mér skilst að á Íslandi sé ömmudagur. Mér finnst þetta flott framtak og óska ömmum landsins hjartanlega til hamingju!
Amma í Gljúfraseli, amma Dúdda og mamma: til hamingju með daginn!
Amma í Gljúfraseli, amma Dúdda og mamma: til hamingju með daginn!